Hér getur þú keypt veiðileyfi í Fnjóská, uppáhaldsánni okkar. Einnig getur þú skoðað kort af ánni og prentað það út ef þú vilt. Jafnframt er hér að finna nýjustu fréttir af veiði úr Fnjóská hverju sinni, ásamt veiðistaðalýsingum, skemmtilegum veiðisögum af bökkum árinnar, ýmsum tölulegum upplýsingum um veiði í ánni á undanförnum árum og mörgu fleira. Við vonum að þú hafir ánægju af heimsókninni.
Í Fnjóská er bæði lax — og silungsveiði.
Sumarið 2004 veiddust 442 laxar, 2005 veiddust 452 laxar, 2006 veiddust 380 laxar, 2007 veiddust 346 laxar, 2008 veiddust 502 laxar, 2009 veiddust 417 laxar og 2010 veiddust 1054 laxar.
Meðalveiði áranna 2004 — 2010 er 513 laxar.
Auk þess er töluverð silungsveiði í ánni, fyrst og fremst sjóbleikja og stöku sjóbirtingur, en einnig er þar staðbundinn silungur, bæði bleikja og urriði.
Fjarðará - silungsveiði.
Frá og með sumrinu 2009 eru veiðileyfi í Fjarðará í Hvalvatnsfirði til sölu hér á síðunni.
Einnig er hægt að kaupa veiðileyfi í Jónsabúð á Grenivík, sími 463 3236, netfang joning@emax.is |